Börnin viktuð inn

Áður en kappleikir af ýmsu tagi hefjast eru keppendur viktaðir inn. Gott er að hafa fyrir reglu að vikta börnin sín inn með skipulögðum hætti. Börnin mín voru viktuð inn í gær.

Logi, 2 ára, kemur út með eftirfarandi tölur:

  • Vikt: 17 kílógrömm (í fullum klæðnaði)
  • Hæð: 90,0 cm (í sokkum)

Birta, 7 ára, var innmæld með eftirfarandi tölur:

  • Vikt: 27 kílógrömm (í fötum)
  • Hæð: 127,2 cm (í sokkum)

Mælingarnar voru framkvæmdar af tveim verkfræðingum og niðurstöðurnar verða því að teljast afar áreiðanlegar. Hinsvegar ber að nefna að mælingarnar fóru fram annan í páskum, eftir óskaplega yfirgengilegt súkkulaðiát barnanna. Og meðfylgjandi sykurköst.

Geriðisvovel.


Páskadinner

Stína frænka er búin eða vera í Bretlandi í langan tíma og kom heim í páskafrí. Afi og amma og Stína komu í páskadinner. Fordrinkurinn var Kir Royal. Forrétturinn var Villibráðarpate með Stínu eplachutney, Biscottes Rondes frá Fauchon og sætu hvítvíni, Chateau Dereszla Tokaji Aszu, 5 puttonyos frá Ungverjalandi. Í aðalrétt var Hlýri í piparrjómasósu með kartöflum og salati. framreitt með hinu klassíska Dopff & Irion Gewurztraminer frá Alsace. Í eftirrétt var svo Gráfíkju og súkkulaði ostakaka frá Delicatessen á Skólavörðustíg, framreitt með Taylor´s Late Bottled Vintage Port 2001. Verður ekki mikið betra. Hér eru nokkrar myndir.

IMG_0087IMG_0089

IMG_0090

Og Logi tók svakalegt gítarsóló, eins og hann er vanur, hér er smá myndband af aðal gítarleikaratöffaranum í bænum:


Vondikallinn í Glasgow (og Poitiers)

Í fyrradag tók ég mér tveggja daga frí úr vinnu og fór til Glasgow til að vera vondikallinn. Þar var Iain Sanderson að verja doktorsritgerð sína um hvernig reykræsta eigi stórar byggingar ef eldur kemur upp, svo að fólk komist út og enginn skaðist. Iain er eldri herra og búinn að dunda lengi við þetta. Ég var andmælandinn og yfirheyrði hann í tæpa tvo klukkutíma, hann sýndi að hann kunni sitt fag. Hann var hvergi smeykur.

Eftir vörnina fórum við á pub og borðuðum síðan á nokkuð góðum veitingastað. Þrátt fyrir góðan mat fór ég síðar um kvöldið í "chip shop" í nágrenninu (fitugar búllur með djúpsteiktum mat) og fékk mér "black pudding" (djúpsteikt blóðmör) og "soggy chips with vinegar" (þykkar, fitugar, linar, blautar franskar kartöflur með ediki). Ástæðan fyrir þessu fáránlega mataræði mínu er að ég bjó þarna í 5 ár þegar ég var ungur maður og þá þótti þetta í hæsta máta eðlilegt fæði. 

Hér eru nokkrar myndir:

Leiðbeinandinn Prof. Jose Torero, ég og Iain SanderssonÉg og aðalleiðbeinandinn, Prof. Tony Kilpatrick

Flottur dinner

Svo get ég ekki annað en sett inn mynd af öðrum doktorsnema, Tony Pearson. Hann varði ritgerðina sína við University of Poitiers í Frakklandi núna í febrúar, og ég var vondikallinn. Ritgerð Tony´s fjallaði um hættulegar gassprengingar sem geta orðið við eldsvoða. Honum gekk vel í vörninni og stóðst prófið. Tony er sérstakur drengur og hefur óskaplega mikinn áhuga á öryggismálum, sérstaklega eigin öryggi þegar hann fer á hjólinu sínu heim. Hér er hann á leiðinni heim úr doktorsvörninni, í fullum skrúða. Spes náungi. Eins og ýmsir aðrir sem skrifa doktorsritgerð í verkfræði.

Tony í fullum skrúða


Gamlárskvöld 2004

Ég fann nokkrar gamlar myndir frá gamlárskvöldi 2004, Logi var 14 daga gamall. Smelli þeim inn.

Logi sybbinnLogi 14 daga gamall hjá pabba

Birta hugsarBirta pælir meira

Birta og pabbi skjóta upp flugeldum


Nokkrar gamlar myndir

Hér eru nokkrar gamlar myndir sem ég fann á harða disknum. Þær eru teknar á símamyndavél, við ýmis tækifæri, og gæðin eftir því.

Logi eins dags gamallLogi nýkominn í heiminn

Birta útskrifast úr leikskóla 2004 Birta spilar á flautu við útskrift úr leikskóla.

Birta tínir blóm hjá Jóni SigBirta og pabbi

Birta kyssir pabba


2 ára afmæli Loga

Logi varð 2 ára í desember, afi og amma komu. Amma bakaði kökur og kom með 2 kerti. Logi fékk gítar og er nú orðinn hinn mesti gítarsnillingur. Meira af því síðar.

Birta, Logi og afiPabbi sker kökuna sem amma bakaði

Logi alvarlegur á afmælisdaginnSpilar á gítarinnLogi og Sindri í stuði


7 ára afmæli Birtu

Birta hélt upp á 7 ára afmælið þann 10. október 2006 í Ævintýralandi með öllum krökkunum í bekknum!

Geriðisvovel!Birta og AnikaLogi keyrir bílinn

Birta og pabbiLogi í rennibrautinni

 


Vestfjarðaferð síðastliðið sumar

Ég og elskurnar mínar tvær, Birta 7 ára og Logi 2 ára, fórum í Vestfjarðaferð með Afa og Ömmu, Stínu frænku, Stebba frænda og Sigurborgu. Við gistum í Flókalundi, á Tálknafirði og Ísafirði og heimsóttum Vigur. Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni.

Við hittum Dommu frænku og hennar börn í StykkishólmiLogi slappar af í Flókalundi

 

Við hittum Dommu frænku og börnin hennar í Stykkishólmi.

BirtaLogi og AfiBirta að æfa sig

Og Birta hitti konu sem kenndi henni að ganga með bók á höfðinu. Sérstakt.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband